Summary from the original article

Selenskí er ekki viðstaddur viðræðurnar en erindrekar Úkraínu gerðu honum grein fyrir gangi mála á meðan hann átti fundi með forsætisráðherrum Norðurlandanna í Danmörku.
AI key points, how left, center and right framed this story, tone by side and loaded language are part of News.gg Premium.
Upgrade this serverViðræðum Rússa og Úkraínumanna í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum lauk í dag. Óljóst er hvað kom út úr fundinum fyrir utan umfangsmikil fangaskipti sem munu hafa verið samþykkt. Rússar eru sagðir hafa krafist þess að ríkjum sem gengu til liðs við NATO eftir árið 1997 yrði vísað úr bandalaginu.
13 hours ago · visir.is
Rússland og Úkraína hafa hafið á ný viðræður í Abú Dabí, með milligöngu Bandaríkjanna, annan daginn í röð, að sögn Rustems Umerovs, aðalsamningamanns Úkraínumanna.
17 hours ago · mbl.is
Eldur kom upp á hafnarsvæði Ust-Luga við Eystrasaltið eftir drónaárás frá Úkraínu. Úkraínuher hefur gert ítrekaðar árásir á höfnina en hún er mikilvægasta miðstöð olíuflutninga Rússa í vesturhluta landsins. Þá skutu loftvarnarkerfi Rússlands hundrað fjörutíu og sex dróna niður í Leníngrad-héraði en þar er Sankti Pétursborg stærsta borgin. Átján flugferðum var seinkað eða aflýst á stærsta flugvelli borgarinnar. Á meðan átökin á milli Rússlands og Úkraínu halda áfram funda samninganefndir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í þessari viku með milligöngu Bandaríkjanna. Olíuflutningaskip við…
21 hours ago · ruv.is
Selenskí er ekki viðstaddur viðræðurnar en erindrekar Úkraínu gerðu honum grein fyrir gangi mála á meðan hann átti fundi með forsætisráðherrum Norðurlandanna í Danmörku.
Yesterday · mbl.is · You are reading this one
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir að áformað sé að opna skrifstofu í Kaupmannahöfn sem hafi umsjón með „Freyju“, nýju loftvarnarkerfi sem koma á í stað Patriot-kerfis Bandaríkjanna. Freyja er þróað í samvinnu Evrópuríkja undir forystu Úkraínumanna. Í september sagði Zelensky að kerfið yrði tilbúið til prófunar í desember. Hann segir að skrifstofan gæti opnað innan mánaðar. Starfslið skrifstofunnar yrði fjölþjóðlegt og unnið væri í samstarfi við mismunandi fyrirtæki í varnariðnaði. Þetta er meðal þess sem Zelensky ræddi á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í kvöld. Hann er í opinberri…
Yesterday · ruv.is
Þríhliða viðræðum Úkraínumanna, Rússa og Bandaríkjamanna um frið í Úkraínu, sem hófust í Abú Dabí í morgun. er lokið í dag. Þeim verður fram haldið á morgun. Samningamenn hafa ekkert látið uppi opinberlega um hvernig viðræðurnar ganga. Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna sagði í París, þar sem utanríkisráðherrar G7-ríkjanna eru á fundi, að viðræðurnar hefðu verið mjög árangursríkar. Hann sagði að Evrópa ætti þegar til kastanna kemur að koma að viðræðunum þar sem Evrópa væri hluti af langtímalausn stríðsins. Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu var hins vegar ekki eins bjartsýnn þegar…
Yesterday · ruv.is
Eftir að hafa varpað sprengjum á skóla þar sem tugir óbreyttra úkraínskra borgara höfðu komið saman til að fá mataraðstoð, vörpuðu Rússar um þriggja tonna sprengju á neðanjarðarskýli sem fólkið sem lifði fyrstu árásina af faldi sig í. Að minnsta kosti fimmtíu létu lífið í árásunum en árásin er sú mannskæðasta í Úkraínu á þessu ári.
2 days ago · visir.is
Danir munu senda hernaðarstuðning til Úkraínu sem jafngildir 4,8 milljörðum danskra króna, eða tæpum 90 milljörðum íslenskra króna. Þetta upplýsti Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur í samtali við fréttamenn í morgun. Þetta er 32. stuðningspakkinn sem Danir senda til Úkraínu frá upphafi stríðsins þar. Rasmussen sagði jafnframt að 150 milljónum danskra króna, eða 2,8 milljörðum íslenskra króna, í aðstoð við orkuiðnaðinn í Úkraínu. „Fólki er þegar orðið hrollkalt í Úkraínu. Það eru meiri rafmagnstruflanir en við höfum séð síðan stríðið hófst. Við viljum gjarnan nota þennan dag til…
2 days ago · ruv.is
Rússneskir og úkraínskir erindrekar hófu fundarhöld í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í morgun. Bandarískir erindrekar og evrópskir eru einnig á staðnum en fundarhöldin eru til komin vegna Bandaríkjamanna og er vonast til þess að hægt verði að binda enda á stríðið í Úkraínu og tryggja öryggi í Evrópu.
2 days ago · visir.is
Þríhliða viðræður fulltrúa Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna eru hafnar í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Þetta er í fyrsta sinn síðan í febrúar sem fulltrúar ríkjanna þriggja funda saman. Gert er ráð fyrir að viðræðurnar standi yfir í tvo daga, 10.–11. nóvember, og verða landsvæðamál og öryggistryggingar á dagskrá. Áður en formlegar viðræður hófust fundaði úkraínska sendinefndin með fulltrúum...
2 days ago · mannlif.is
Morgunbladid Friðarviðræðurnar uppbyggilegar og efnismiklar
Morgunbladid Viðræður Rússlands og Úkraínu halda áfram