Summary from the original article
Stór skjálfti reið yfir í Bárðarbungu klukkan 13:37 í dag. Hann var af stærðinni 4,5 og engir eftirskjálftar hafa fylgt þegar þetta er skrifað. Þá hafa engar tilkynningar borist við Veðurstofu Íslands um að skjálftinn hafi fundist í byggð. Skjálftar af þessari stærð eru algengir á þessum slóðum og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015. Engin merki eru um gosóróa. Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu þann 19. október. Hann mældist 5,2 að stærð, en þar áður…
By Fréttastofa RÚV ·
AI key points, how left, center and right framed this story, tone by side and loaded language are part of News.gg Premium.
Upgrade this serverAustanlands verða hvassar norðvestanáttir og gular viðvaranir í gildi vegna vinds á Austfjörðum og sunnan Vatnajökuls. Á vef Vegagerðarinnar segir að ófært sé vegna hvassviðris í Hamarsfirði og í Álftafirði. Í öðrum landshlutum er mun hægari vindur og víða bjart. Það verður þó skýjað og dálítil él norðaustanlands. Frost á bilinu 0–7 stig. Norðanáttin gengur niður í kvöld og nótt. Þetta kemur fram í pistli veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Á morgun snýst í suðvestanátt og vestantil fer að snjóa. „Það hlýnar smám saman og úrkoman breytist í slyddu eða rigningu á láglendi síðdegis. Þurrt og kalt…
19 hours ago · ruv.is
Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á Austfjörðum og Suðausturlandi vegna norðan hvassviðris eða storms.
20 hours ago · mbl.is
„Á meðan kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi er líklegasta sviðsmyndin að kvika hlaupi yfir í Sundhnúkagígaröðina,“ segir í mati Veðurstofunnar.
Yesterday · mbl.is
Landris heldur áfram við Svartsengi með nokkuð stöðugum hraða og þrýstingur eykst enn á kvikusöfnunarsvæðinu á nokkurra kílómetra dýpi. Ekkert bendir til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Þetta kemur fram í nýjustu stöðuuppfærslu Veðurstofu Íslands.
Yesterday · visir.is
Veðurstofan og Vegagerðin vara við hvassviðri um landið suðaustanvert í nótt og á morgun. Veðurstofan varar við hvössum norðvestan vindstrengjum á Austfjörðum og undir Vatnajökli á morgun sem getur verið varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Í nótt má búast við vindstrengjum um 35 metrum á sekúndu við fjöll allt frá Öræfum og austur að Djúpavogi. Síðdegis á morgun dregur hægt úr vindi en ekki er búist við að lægi fyrr en seint annað kvöld. RÚV / Jóhannes Jónsson
2 days ago · ruv.is
Stór skjálfti reið yfir í Bárðarbungu klukkan 13:37 í dag. Hann var af stærðinni 4,5 og engir eftirskjálftar hafa fylgt þegar þetta er skrifað. Þá hafa engar tilkynningar borist við Veðurstofu Íslands um að skjálftinn hafi fundist í byggð. Skjálftar af þessari stærð eru algengir á þessum slóðum og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015. Engin merki eru um gosóróa. Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu þann 19. október. Hann mældist 5,2 að stærð, en þar áður varð skjálfti af stærð 4,7 þann 5. október. Google Imagery
2 days ago · ruv.is · You are reading this one
Klukkan 13:37 reið yfir skjálfti að stærð 4,5 í Bárðarbungu í Vatnajökli, en engir eftirskjálftar hafa fylgt honum. Tveir aðrir stórir skjálftar riðu yfir Bárðarbungu í síðasta mánuði.
2 days ago · mbl.is